Mfl.kk: leikur gegn Fylki á morgun (fimmtudag)

Kristjan_Einar_AuunssonMeistaraflokkur karla leikur síðasta leik sinn í riðlakeppni reykjavíkurmótsins á fimmtudaginn (2.febrúar) kl. 19:00 í Egilshöll. Nú er um að gera að fjölmenna og styðja við bakið á strákunum en liðið getur tryggt sig áfram í undanúrslitin.

Staðan í riðlinum er þessi:

Félag L U J T Mörk Net Stig
1 Fylkir 2 2 0 0 6  -    2 4 6
2 Þróttur R. 2 1 1 0 3  -    0 3 4
3 Valur 2 0 1 1 2  -    3 -1 1
4 Fjölnir 2 0 0 2 0  -    6 -6 0

Tvö efstu liðin fara áfram í undanúrslit.

LIFI Þróttur!

Ósigur fyrir norðan

MFL_KK_2011_KA2Loks er komið að frétt af Akureyrarferð meistaraflokks karla í blaki. Leikurinn fór fram síðast liðinn laugardag og endaði með 3-0 sigri heimamanna. Stigahæstur var Fannar Grétarsson með 10 stig. Nokkrar breytingar hafa orðið á liði Þróttar og raunar einnig KA. Frakkinn Willem Mazotti hefur haldið heim og einnig Þjóðverjinn Matthias Kientzler. Lettneskur leikmaður, Anders að nafni, lék sinn fyrsta leik með Þrótti. KA menn sem hafa ekki riðið feitum hesti frá mótinu fyrir áramót en tefldu fram sterkara liði en hingað til á móti. Mestu munaði þó um að Þróttarar voru fjærri sínu besta í leiknum og náðu sér í raun aldrei á strik. Þróttur hefði með sigri getað komist yfir HK og upp í sæti, en er sem fyrr í því þriðja. KA menn eru enn á botninum.

Ayman Bellamine söluhæstur í jólahappadrættinu

429748_10150594008368566_602088565_9110549_714219181_n_copyAyman Bellamine var söluhæstur í jólahappadrætti Þróttar þetta árið en hann seldi 104 miða sem er það mesta sem munað er eftir að hafi verið selt af einum og sama iðkandanum. Ayman sem er í 5.flokki lagði mikinn metnað í söluna sem skilaði honum titlinum "söluhæsti einstaklingurinn" og hann hlýtur að launum boðsmiða fyrir tvo á landsleik í fótbolta í boði KSÍ.

 

 

Einnig má til gamans geta að aðalvinningurinn rann út í dag en það var Samsung Galaxy spjaldtölva frá Tæknivörum. Vinningshafinn var Guðmundur Bjarnason.

P1000516

Þorrablóti Þróttar 2012 aflýst

Trottur_logo_2004_Skjar100x300Þorrablóti Þróttar 2012 hefur verið aflýst og í staðinn er stefnt að vorfagnaði.

Kv. Starfsfólk Þróttar

Egill Gauti í úrtakshópi U-16

Trottur_logo_2004_Skjar100x300Egill Gauti Þorsteinsson leikmaður félagsins hefur verið valinn á æfingar hjá U-16 ára landsliði karla sem æfir tvisvar um komandi helgi, laugardag og sunnudag.

Við óskum Agli Gauta góðs gengis.

Jólahappadrætti Þróttar: Vinningsnúmer

rttur_HappdrttismiarÍ dag var dregið í jólahappadrætti Þróttar, alls voru 96 vinningar í boði. Salan gekk ljómandi vel og styrkir stoðirnar undir allar deildir Þróttar. Aðalvinningurinn var Samsung Galaxy spjaldtölva frá Tæknivörum.

Vinningsnúmerin má einnig nálgast HÉR.

alt

 

Allir útistandandi miðar voru ógildir. Útistandandi miðar eru þeir miðar sem hafa farið til iðkenda eða félagsmanna en hefur ekki verið skilað eða verið greitt fyrir.

Hægt verður að vitja vinninga næstu daga á skrifstofu Þróttar, einnig hægt að hafa samband við starfsmenn Þróttar á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Sími Þróttar er svo 580-5900. Sé vinnings ekki vitjað fyrir 1. mars 2012 fellur vinningurinn niður.

Við vonum svo auðvitað að sem flestir verði heppnir með sitt númer.

LIFI Þróttur!

Bls. 1 af 229

You are here Forsíða