Rey Cup 2011 20. – 24. júlí

reycup08Mótshaldarar eru afar ánægðir með hve vel tókst til með skipulag og framkvæmd Rey Cup 2010 og hafa bæði þátttakendur, fararstjórar og þjálfarar látið í ljós ánægju sína þar að lútandi.

Nú þegar er hafinn undirbúningur fyrir Rey Cup 2011 en þá verður knattspyrnuhátíðin haldin í tíunda skiptið en hún fór fyrst fram árið 2002.

Unnið verður að fjölgun erlendra þátttökuliða næstu fimm árin á grundvelli nýgerðs samnings við Reykjavíkurborg. Einnig er ráðgert að efla dómgæslumál á Rey Cup með aðkomu sérfróðra erlendra fagaðila á því sviði og í góðu samstarfi við KSÍ.

8.flk - Atlantismót á sunnudag!

Sæl öllsömul!

Við ætlum að taka þátt í Atlantismóti Aftureldingar nk. sunnudag (15.ágúst). Mótsgjald er 1.000 krónur á þátttakanda og verður leikið í 5 manna liðum líkt og á VÍS-mótinu fyrr í sumar. Mótið verður líklega spilað hálfan dag en allar nánari upplýsingar munu birtast á blogginu í vikunni.

Þar sem fyrirvarinn er stuttur viljum við biðja ykkur um að hafa hraðar hendur og skrá ykkur á mótið með athugasemd hér fyrir neðan sem allra fyrst ef þið hafið áhuga á að vera með. Í skráningunni verður að koma fram fullt nafn iðkanda og fæðingarár. Gott væri ef þið létuð þetta berast til þeirra sem þið þekkið í flokknum svo að enginn missi af fjörinu.

Kveðja,
Mist og Guðjón

Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir eftir þjálfurum

Trottur_logo_2004_Skjar100x300

Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir eftir aðalþjálfurum fyrir yngri flokka félagsins keppnistímabilið 2010-2011.

 

Enn einn sigurinn hjá stelpunum okkar.

rottur-hk
Mynd úr fyrri leik þessara liða sem að endaði með sigri Þróttar 1-0.

Meistaraflokkur kvenna spilaði við lið HK/Víking á Valbjarnavellinum í gær og spiluðu þær þar með 10 leik sinn í deildinni í sumar en fyrir leikinn voru þær á toppnum ósigraðar eftir 9 leiki.

Það er skemst að segja frá því að stórsigur leit dagsins ljós en leikurinn endaði 8-0 okkar stelpum í hag. Mörkin skoruðu Soffía 3, Margrét María 2, Ruth Þórðar 2 og hin síunga Hrefna Huld 1. 

Nánar um leikinn hér að neðan.

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

You are here Forsíða