Knattspyrnufélagið Þróttur er 61 árs í dag.
Félagið var stofnað 5.ágúst árið 1949, stofnfundurinn var haldinn í herbragga vestur í Grímsstaðavör í Reykjavík. Þróttur starfaði í Vesturbænum fyrstu 20 árin, við mikið aðstöðuleysi og oft við þröngan kost fjárhagslega. Árið 1969, á 20 ára afmæli félagsins, flutti Þróttur milli bæjarhluta, í austurbæinn og eignaðist aðstöðu við Sæviðarsund þar sem félagið starfaði til ársins 1999 þegar flutt var í Laugardalinn þar sem félagið er enn þann dag í dag.
Til hamingju með daginn allir Þróttarar nær og fjær.
LIFI ÞRÓTTUR

