Mfl.karla: Fjarðabyggð-Þróttur á miðvikudag

eplogsiggi2009_002
Eysteinn Pétur verður í eldlínunni á Eskifirði
Meistaraflokkur karla leikur sinn fjórtánda leik í 1.deildinni þetta sumarið, mótherjarnir eru Fjarðabyggð og leikið verður á Eskifjarðarvelli. Liðið situr sem stendur í 8.sæti deildarinnar af tólf liðum. Með sigri getur liðið komið sér upp um eitt sæti og það munar um minna.

Hvetjum alla til að fjölmenna austur á Eskifjörð í hörkuleik gegn Fjarðabyggð.

Lifi Þróttur !

Frábæru Rey Cup móti lokið í Laugardalnum...

Nú er okkar árlega Rey Cup móti lokið og er óhætt að segja að mótið hafi gengið vel. Þróttarar stóðu sig með stakri prýði og voru öll lið Þróttar til mikillar fyrirmyndar og félaginu til sóma. Að þessu sinni náðum við einum bikar í hús, en strákarnir í 4.flokki C fengu gullið og bikar. Önnur verðlaun Þróttar voru: 

 

Halli markmaður til reynslu hjá FC Roskilde

Halli fer á reynslu til FC RoskildeSamkvæmt frétt fótbolta.net frá því í dag, er Haraldur Björnsson, markvörður meistaraflokks karla farinn til reynslu hjá danska liðinu FC Roskilde.  Halli tekur þátt í æfingaleik með þeim um helgina. 

Halli er á láni hjá okkur frá Val, og hefur verið einn besti leikmaður liðsins í sumar.   Næsti leikur Þróttara er á miðvikudaginn í næstu viku gegn Fjarðarbyggð, og Halli verður kominn heim fyrir þann leik.

Grillveisla Rey Cup "Aðstoð óskast"

Aðstoðarfólk vantar til að hjálpa til við afreiðslu í grillveislu á Rey Cup mótinu seinni partinn á morgun (laugardag).

Um er að ræða ca. 3 klst. Frá kl 17.00

Mæting í fjölskyldu og húsdýragarðinn.

Vinsamlegast staðfestið mætingu í símum 692-5463 eða 692-5464

Grillnefndin

 

Þróttaravarpið

rttaraVarpi_copyLeikur Þróttar og HK í gær var hin mesta skemmtun. Nú er hægt að sjá svipmyndir úr þeim ágæta leik hér. Einnig hefur verið bætt svipmyndum úr leik Þróttar og Víkings sem fór fram 16. júní s.l. Sá leikur er aðgengilegur hér. Ég vil minna áhugasama á að hægt er að gerast fylgjandi Þróttaravarpsins á Youtube og þannig sjá þegar ný myndbönd koma inn. 

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

You are here Forsíða