Þróttarar taka á móti HK mönnum í kvöld. Þar sem Valbjarnarvöllur ásamt restinni af Dalnum er í stöðugri notkun vegna ReyCup, þá verður leikurinn leikinn á þjóðarleikvanginum, sjálfum Laugardalsvelli. Leikurinn hefst á slaginu 20:00.
Strákarnir hafa ekki verið á góðu róli undanfarið, og nú þurfum við að sýna stuðning okkar með því að fjölmenna á völlinn. Enn og aftur vill ég minna á að stuðningur við strákana getur skipt gríðarlegu máli. Mætum því á völlinn og höfum gaman.
LIFI ÞRÓTTUR!!!!
Jafningjafræðsla Hins hússins, Knattspyrnusamband Íslands og Lýðheilsustöð hafa hleypt af stað átaksverkefninu „Bagg er bögg“. Átakinu er ætlað að sporna við aukinni munntóbaksnotkun hjá ungu fólki, þar sem sérstök áhersla er lögð á unga knattspyrnuiðkendur. Andlit átaksins eru Alfreð Finnbogason landsliðsmaður í knattspyrnu og Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðskona í knattspyrnu ásamt jafningjafræðurunum Rúnari Guðbjartssyni (leikmanni mfl.karla hjá Þrótti) og Sigríði Ólafsdóttur, en þau spila einnig knattspyrnu með íslenskum félagsliðum samhliða störfum sínum hjá Jafningjafræðslunni.
