Það var skemmtilegt fótboltaveður í Laugardalnum í kvöld þegar Þróttarar fengu Gróttumenn í heimsókn. Grenjandi rigning og logn, þegar dómari leiksins flautaði til leiks. Hallur og Dusan voru í banni hjá Þrótti, og liðið var þvið þannig skipað að Halli var í markinu með þá Ingva, Eystein, Helga Pétur og Birki fyrir framan sig. Á miðjunni voru Elli Jack og Ingvar Óla. Höddi og Guffi á köntunum og Dóri fyrir aftan Mumma sem var fremstur.
Leikurinn byrjaði ágætlega, og eftir 6 mínútur var Guffi sloppinn í gegn. Guffi náði skotinu, en Kristján Finnbogason varði glæsilega í marki Gróttu. Um 10 mínútum síðar fékk Guffi aftur boltann, eftir góða sendingu frá Hödda, en í þetta skiptið setti Guffi boltann framhjá.