42 lið voru mætt til leiks síðustu helgi í Kaplakrika í móti sem FH sá um. Þróttarar sendu að venju tvö lið. B liðið náði góðum árangri en A. liðið átti við ramman reip að draga enda að spila í efstu deild.
B. liðið spilaði samtals 4 leiki og voru þeir við Þór Akureyri, Hauka, Stjörnuna og Fylkir. Skemmst er frá því að segja að strákarnir unnu alla leikina sannfærandi þar sem vörn og markvarsla ásamt góðum sóknartilþrifum skópu sigurinn. Góður árangur hjá strákunum sem eru komnir upp um deild með metalíu um hálsinn.
A. liðið sem var að spila í fyrstu deild spilaði 5 leiki og voru þeir við FH, Stjörnuna, HK, Selfoss og Gróttu. Allt voru þetta hörku leikir en því miður þá náðu strákarnir ekki að landa neinum sigri í þetta sinn.
Má því segja að gengi liðsins hafi verið svona upp og niður í þessu móti.


