Meistaraflokkur kvenna lék æfingaleik við ÍR í Egilshöllini í gærkvöldi. Theodór þjálfari notaði leikinn til að prófa ný leikkerfi og skoða leikmenn í nýjum stöðum enda mörg verkefni framundan og að ýmsu sem þarf að huga.
Leikurinn byrjaði heldur rólega en hægt og bítandi tóku Þróttarar öll völd og unnu að lokum 9-0 sigur.
Eins og fram hefur komið voru Þróttarar lengi í gang en það tók sinn tíma að venjast nýju leikkerfi sem var heldur varnarsinnað. Þegar leið á fyrri hálfleikinn fóru okkar konur að leggja meiri áherslu á sóknarleikinn og skilaði það sér í fjórum mörkum. Kristín Einarsdóttir skoraði tvívegis, Margrét María setti eitt og Kristrún Rose eitt. Þrátt fyrir að um æfingaleik væri að ræða fagnaði Kristrún markinu líkt og hún hefði skorað úrslitamark HM enda hefur daman ekki skorað síðan í úrslitaleik 3.flokks kvenna á Rey Cup árið 2005, og var farin að lengja eftir næsta marki.
Síðari hálfleikur var einstefna að marki ÍR og náðu Þróttarar að bæta við fimm mörkum. Særós hafði komið inná sem varamaður í hálfleik og hún skoraði tvívegis auk þess sem hún lagði upp mark fyrir Soffíu. Hallveig Ólafsdóttir skoraði svo glæsilegt mark eftir hornspyrnu en hún „læraði“ boltann í slánna og inn og hafði ekki minna gaman af markaskoruninni en Kristrún. Síðasta mark leiksins skoraði svo nýji Þróttarinn, Jóna Benný Kristjánsdóttir, með glæsilegu skoti utan af velli (eða misheppnaðri fyrirgjöf ☺).
Þetta var fínn leikur hjá stelpunum og það er hægt að taka margt jákvætt úr úr honum. Lið ÍR byrjaði vel en gaf svo eftir og eftir það varð mótstaðan ekki mikil fyrir Þróttarar. ÍR-ingar eru að pússa liðið sitt eftir fall úr Pepsi-deildinni síðastliðið sumar en þær hafa misst nokkra öfluga leikmenn. Þær eiga þó án efa eftir að mæta sterkari til leiks næsta sumar og það verður gaman að takast á við þær í 1.deildinni.
Næsta verkefni meistaraflokks kvenna er leikur gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu á sunnudag. Leikurinn hefst kl.20:00 og verður spilaður í Egilshöll. Það væri gaman að sjá sem flesta Þróttara mæta á svæðið og hvetja stelpurnar til dáða.
Lifi Þróttur!


