8.flokkur - Minnum á breytta æfingatíma

8flkVið vekjum athygli á því að æfingum 8.flokks hefur nú verið tvískipt. Æfingar eru sem fyrr á laugardögum í íþróttahúsi Vogaskóla/MS en vegna fjölda iðkenda æfir flokkurinn nú í tveimur aldursskiptum hópum.

Börn fædd árið 2004 æfa kl.10:00-11:00

Börn fædd á árunum 2005 og 2006 æfa kl.11:00-12:00.

Athugið að skiptingin er til viðmiðunar en markmiðið með henni er að börnin fái verkefni við sitt hæfi og njóti sín á æfingum. Það getur t.d. í sumum tilfellum hentað byrjendum f. 2004 að æfa með yngri hópnum.

Nýjir iðkendur eru ávallt velkomnir. Það er um að gera að mæta á svæðið og prófa.

Sjáumst á næstu æfingu!

Kv. Mist og Guðjón

Athugasemdir (0)add comment

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

busy
You are here Fótbolti > 8. flokkur > 8.flokkur - Minnum á breytta æfingatíma