Þorrablót Laugardalsins fór fram 23. janúar s.l. í Laugardalshöllinni.
Óhætt er að segja að Þorrablótið hafi tekist með eindæmum vel og nokkuð ljóst að "blótið" er komið til að vera.
Um 300 manns mættu að þessu sinni í matinn og ballið, en það var Cocktail.is sem sá um matinn en stórsveit Jóns Ólafs með Stefán Hilmarsson í fararbroddi sem sá um fjörið. Veislustjóri var Sólmundur Hólm.
Við viljum þakka öllum þeim sem mættu á Þorrablótið og vonandi sjaúm við ykkur öll að ári ásamt þeim sem misstu af þessari frábæru kvöldstund þetta árið.
Næsta Þorrablót verður haldið laugardaginn 22. jan 2011.
Hér er hægt að kíkja á nokkrar myndir frá kvöldinu.
Kveðja
Undirbúningsnefndin.
Uppáhald
Bókamerki
Senda með tölvupósti
Skoðað: 473
Athugasemdir (0)

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

