Við Þróttar fengum í dag kærkomna viðbót þegar Ingvar Ólason gerði samning við félagið út þetta ár. Auk þess mun Ingvar vera aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.
Ingvar þarf vart að kynna fyrir Þrótturum enda uppalinn hjá félaginu og lék með öllum flokkum félagsins uppí meistaraflokk. Ingvar hóf að leika með meistaraflokki Þróttar árið 1991 og skipti yfir til Fram árið 1999 þar sem hann hefur verið síðan. Ingvar hefur leikið yfir 170 leiki í efstu deild og var m.a. á síðasta ári valinn leikmaður ársins hjá Fram. Við Þróttarar væntum mikils af Ingvari og vitum að hann á eftir að miðla reynslu sinni og dugnaði vel til yngri leikmanna. Velkominn heim Ingvar.
Ingvar og Finnbogi undirrita samninginn í morgun.
Ingvar kominn í röndótta búninginn á nýjan leik. Á myndinni er einnig sonur Ingvars, Unnar Steinn.
Uppáhald
Bókamerki
Senda með tölvupósti
Skoðað: 538
Athugasemdir (3)

gestur
said:
|
... Frábært Ingvar og allir Þróttarar. Velkominn gamli vinur. Gerum sumarið skemmrilegt og framtíðin er björt. |
gestur
said:
|
... Frábært að fá Ingvar, Dóra, Ella og alla nýju leikmennina í Dalinn. :) Velkomnir strákar. LIFI ÞRÓTTUR! |
Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

