Meistaraflokkur kvenna lék gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu í gær. Fyrirfram var búist við erfiðum leik enda er Fylkir eitt af sterkari liðum efstu deildar og leikir á milli liða í efstu og 1.deild hafa oftar en ekki verið leikir kattarins að músinni.
Þróttarar léku öflugan varnarleik í gær og héldu sóknarmönnum Fylkis í skefjun. Það fór lítið fyrir Þrótturum fram á við en að er kannski skiljanlegt þar sem áherslan var fyrst og fremst lögð á agaðan og skipulagðan varnarleik. Svo fór að Fylkir skoraði tvívegis, fyrst undir lok fyrri hálfleiks og síðan undir lok seinni hálfleiks og lokatölur urðu því 2-0 fyrir Fylki.
Eins og fram kemur hér að ofan lögðu Þróttarar megináherslu á varnarleikinn og að loka á helstu styrkleika Fylkisliðsins. Það verður að segjast eins og er að það gekk nokkuð vel en þrátt fyrir að Fylkisliðið væri mun meira með boltann gekk þeim illa að skapa sér opin færi.
Strax á 2. mínútu gerðist umdeildasta atvik leiksins en þá sló sóknarmaður Fylkis til Diljár og sparkaði svo á eftir henni eftir skallaeinvígi. Samkvæmt reglum hefði slík framkoma verðskuldað rautt spjald en Fylkisstúlkan var stálheppin og slapp með gult spjald. Aðeins mínútu síðar varð sú hin sama uppvís að því að gefa leikmanni Þróttar olnbogaskot en aftur var hún heppin því að dómarinn sá ekki til hennar.
Það var ekki fyrr en á lokamínútu fyrri hálfleiks sem að Fylkir náði forystunni. Þá voru varnarmenn Þróttar ekki nógu fljótir að stilla upp og innkast frá Fylki rataði inná Kristrúnu Kristinsdóttur sem fékk of mikið pláss í teignum og náði að setja boltann í fjærhornið.
Seinna mark Fylkis kom svo á lokamínútum leiksins en það skoraði varamaður þeirra, Íris Dóra Snorradóttir. Þegar markið var skorað voru Þróttarar einum færri þar sem að meiddur leikmaður var utan vallar. Þróttarliðið náði ekki að bregðast nógu vel við því, skipulagið hélt ekki og það nýttu andstæðingarnir sér.
Þrátt fyrir tap geta Þróttarar verið nokkuð ánægðir með sína frammistöðu. Vissulega áttu stelpurnar að gera betur í mörkunum tveimur og eins hefðu leikmenn átt að vera klókari í skyndisóknum en það gáfust þónokkur færi til að sækja hratt á Fylkisliðið sem var oft fáliðað í vörninni. Með betri sendingum og klókari hlaupum hefði vel verið hægt að valda meiri usla.
Næsti leikur er gegn KR og er jafnframt lokaleikur liðsins í Reykjavíkurmótinu. Leikurinn verður spilaður næstkomandi föstudag kl. 19:00 í Egilshöll og við hvetjum alla til að mæta og styðja við bakið á stelpunum.


