Þróttarar mættu grimmir til leiks eftir arfaslakan leik gegn HK í síðustu umferð. Svo fór að Þróttur vann fyrstu hrinuna 25-20. Í annarri hrinu mættu Stjörnumenn ákveðnari til leiks og unnu hana heldur auðveldlega 25-18. Allt stefndi í öruggan sigur Stjörnunnar í þriðju hrinu og voru Stjörnumenn með afgerandi forystu 16-9 þegar gert var síðara tæknihlé. Stjörnumenn gáfu þá yngri mönnum kost á að spreyta sig og Þróttarar gengu á lagið og náði með seiglu yfirhöndinni og unnu hrinuna 26-24. Staðan því orðin 2-1 Þrótti í vil. Þróttur hafði lengi vel yfirhöndina í fjórðu hrinu, en gáfu eftir í lokin og það nýttu Stjörnumenn sér og unnu hrinuna 25-21. Liðin skiptust svo á að leiða í oddahrinunni. Stjarnan var yfir þegar skipt var um helminga, 8-6. Þá kom góður kafli hjá Þrótti sem náði forystu 8-10. En lengra komust Þróttarar ekki og Stjörnumenn náðu að landa sigri með góðum leikkafla í lokin 15-12.
Þróttur vann sinn fyrsta sigur á Íslandsmótinu fyrr í vetur þegar liðið lagði Stjörnuna að velli. Í þeim leik vantaði lykilmenn í lið Stjörnunnar, en að þessu sinni tefldi Stjarnan fram sínu sterkasta liði. Gengi Þróttar hefur verið brösótt á þessari leiktíð en strákarnir sýndu í gær að á góðum degi eiga þér að standa jafnfætis hinum liðunum í deildinni.
Sem fyrr var þjálfarinn Micha Overhage stigahæstur í liði Þróttar með 19 stig. Næstur kom Aron Bjarnason, hinn ungi og upprennandi leikmaður Þróttar, með 17 stig. Í liði Stjörnunnar var Emil Gunnarsson stigahæstur með 23 stig og næstur kom Róbert Hlöðversson með 22 stig.
Liðið var annars skipað á eftirfarandi hátt: Sævar Már Guðmundsson var uppspilari, Micha spilaði díó, Guðmundur Guðmundsson og Aron Bjarnason voru kantsmassarar og á miðjunni léku þeir Quentin Cuceul og hinn ungi og efnilegi Hörður Páll Magnússon. Halldór Ingi Kárason spilaði sem fyrr stöðu frelsingja eða líberó.
Næsti leikur liðsins verður gegn firnasterku liði KA föstudaginn 5. mars í íþróttahúsi Kennaraháskólans (gamla). KA liðið leiðir nú deildina og á möguleika á að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í næsta leik. Lið Þróttar verður vængbrotið í þeim leik, þar sem þjálfarinn og stigahæsti leikmaður liðsins Micha Overhage verður fjarri góðu gamni. Sem fyrr hvetur blakdeild Þróttar sem flesta til að mæta og sína strákunum stuðning. Árangur liðsins hefur ekki verið eins og flestir óskuðu sér, en það er engan bilbug á strákunum að finna. Deildarkeppninn verður brátt að baki og við tekur alvaran, úrslitakeppnin. Einnig vil ég minna áhugamenn um blak í Þrótti á að strákarnir leika í undanúrslitum bikarkeppni BLÍ laugardaginn 13. mars. Sem fyrr vil ég hvetja sem flesta til mæta og styðja liðið til sigurs í bikarkeppninni.

