Dagur kvennaboltans er í dag, föstudag

reycup2003
4.flokkur Þróttar 2003. Kannist þið við einhver andlit úr meistaraflokknum?

Í dag, föstudaginn 5.mars verður mikið fjör á gervigrasinu í Laugardalnum en þá verður „Dagur kvennaboltans hjá Þrótti".

Stelpurnar í meistaraflokki ætla að bjóða öllum ungum stúlkum í 3. -7.flokki að koma á æfingu á gervigrasinu í Laugardal kl.16:00.

Leikmenn meistaraflokks munu stýra æfingu en stelpunum verður skipt niður á 7 stöðvar þar sem ýmis knatttækni verður æfð. Til dæmis að halda bolta á lofti, knattrak, móttökur, skot, fótavinna og spil.

Eftir æfinguna verður haldið bingó til styrktar meistaraflokki kvenna í stóra salnum. Bingóspjaldið mun kosta 300 krónur en einnig verður hægt að fá tvö á 500 krónur. Allar stelpur í yngri flokkunum ættu nú að hafa fengið upplýsingar um atburðinn hjá þjálfurum sínum og við vonumst til að sjá sem flestar!

Lifi Þróttur!

Athugasemdir (2)add comment

gestur said:

0
...
Hæ hæ

Þetta verður búið kl 19:00 en það verður boðið upp á kaffi og með því fyrir foreldra ef að þið viljið kíkja á bilinu 16:00-19:00.

kv Teddi þjálfari mfl.kv
5. mar, 2010

gestur said:

0
...
hvenær má búast við að þetta verði búið ? - uppá að sækja þær
5. mar, 2010

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

busy
You are here Fótbolti > Almennt > Dagur kvennaboltans er í dag, föstudag