Kannski ekki mjög hefðbundinn fyrirsögn á heimasíðu Þróttar! En sigur Stjörnunnar þýðir að meistaraflokkur kvenna lendir ekki í neðsta sætinu Mikasadeildarinnar. Tæpara mátti það þó ekki vera, því Stjarnan vann Ými í oddahrinu 15-13. Samkvæmt þessu er Ýmir fallinn úr deildinni, en það er þó háð því að sigurvegarar 2. deildar þykki laust sæti í 1. deild. Þróttur 2, sem er skipað eldri leikmönnum, vann mótið í fyrra en þáði ekki sæti í 1. deild. Það er því ekki loku fyrir það skotið að Ýmir haldi sæti sínu, hafni sigurvegarar 2. deildar að flytja sig upp um deild.
