Sigur á Suðurnesjum

Þróttarar ferðuðust suður með sjó í dag, og mættu þar liði Njarðvíkinga.  Aðstæður til fótboltaiðkunar voru vægast sagt slæmar, rigning, og mikill og sterkur vindur.

Lið Þróttar var þannig skipað að Halli var í markinu sem fyrr, Ingvi, Dusan, Ingvar og Helgi Pétur í vörninni, á miðjunni voru Elli, og ungur drengur að nafni Arnþór Atlason, sem var að leika sinn fyrsta meistaraflokksleik fyrir Þrótt.  Milos og Oddur voru á köntunum, og Dóri fyrir aftan Mumma sem var fremstur.

Þróttarar léku undan sterkum vindi í fyrri hálfleiknum, Dóri átti ágætis skot eftir um tíu mínútna leik, en það fór framhjá.  Oddur átti einnig fínt skot, eftir góðan samleik við Dóra, en varnarmenn Njarðvíkur náðu að komast fyrir það.

Mfl.karla: Njarðvík-Þróttur á laugardaginn

KR-Throttur-Visa-KK-2010-303
Það verður hart barist á Njarðtaksvellinum á laugardaginn

Meistaraflokkur Karla leikur gegn Njarðvík kl. 14:00 á Njarðtaksvellinum í Njarðvík á laugardaginn.

Hvetjum sem flesta til að mæta og styðja að afli Þrótt.

 

LIFI ÞRÓTTUR

Haraldur Björnsson í U-21 landsliðinu sem mætir Tékkum

HallimarkEyjólfur Sverrison hefur valið 18 manna hópinn sem mætir Tékkum þann 7. september í Tékklandi.
Okkar maður er að sjálfsögðu á sínum stað eftir góða frammistöðu á móti Þjóðverjum.
Við óskum Halla góðs gengis í Tékklandi.

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

You are here Fótbolti > Meistaraflokkur karla