Úrslitaleikurinn er í Þorlákshöfn á morgun, sunnudag!

fagnEins og öllum Þrótturum ætti að vera kunnugt tryggði meistaraflokkur sér kvenna sæti í efstu deild kvenna með sigri á Selfyssingum í úrslitarimmu 1.deildar.

Nú er komið að því að leika til úrslita um það hvort að Þróttur eða ÍBV (sem einnig tryggði sér sæti í efstu deild) verður 1.deildar meistari 2010.

Úrslitaleikurinn verður leikinn í Þorlákshöfn á sunnudag kl.12:30 og hvetjum við Þróttara til að mæta á völlinn og styðja stelpurnar í lokaverkefni sumarsins.

Lifi Þróttur!

Umfjöllun: Stelpurnar fara upp eftir mikla dramatík!

_B9P3940
Gleðin tók öll völd þegar ljóst var að Þróttur myndi leika í efstu deild árið 2011. Mynd: Hafliði Breiðfjörð - Fótbolti.net

Meistaraflokkur kvenna tryggði sér sæti í efstu deild kvenna í gærkvöldi með 3-1 sigri á Selfossi í dramatískum leik. Leikurinn var frábær skemmtun fyrir þá fjölmörgu áhorfendur sem mættu á völlinn og létu vel í sér heyra.

Myndaveisla: Þróttur í efstu deild 2011

Meistaraflokkur kvenna tryggði sér sæti í efstu deild að ári með 3-1 sigri á Selfossi í gær. Hér má skoða myndir frá leiknum en þær eru birtar með leyfi Fótbolta.net.

_B9P3992

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

You are here Fótbolti > Meistaraflokkur kvenna